multi-vertical-bb


Heim : Fréttir : Gullorða Haralds V Hákonarsonar Noregskonungs veitt íslenskum vísindamanni
Gullorða Haralds V Hákonarsonar Noregskonungs veitt íslenskum vísindamanni
Dr. Ólafur E. Sigurjónsson, forstöðumaður stofnfrumudeildar Blóðbankans, hlaut gullorðu hans hátignar Haralds V Noregskonungs (HM Kongens gullmedalje) fyrir doktorsritgerð sína, The differentiation potential of human somatic stem cells. Ólafur varði ritgerðina við læknadeild Háskólans í Osló í febrúar 2006. Ólafur tók við orðunni úr hendi Haralds konungs við athöfn í hátíðarsal Háskólans í Osló, 3. september 2007.

Doktorsverkefni sitt vann Ólafur undir leiðsögn Dr. Torstein Egeland við Ónæmisfræðistofnun Ríkisháskólasjúkrahússins í Osló og Prófessor Joel C. Glover við lífeðlisfræðstofnun læknadeildar Háskólans í Osló. Hún fjallar um hæfileika fullorðinsstofnfrumna (somatic stem cells) til að sérhæfast. Ólafur skoðaði sérhæfingarferli sem fer eftir klassískum leiðum, þ.e. innan þess vefjar sem stofnfrumurnar dvelja í og einnig sérhæfingarferli sem fer eftir nýjum og áður óþekktum leiðum en ýmislegt bendir nú til að stofnfrumur geti ferðast yfir í aðra vefi og sérhæfst þar.

Ólafur hóf rannsóknarstörf sín sem líffræðinemi í Blóðbankanum árið 1998. Að loknu háskólanámi hóf Ólafur meistaranám í Blóðbankanum þar sem hann rannsakaði þrokunarferli blóðmyndandi stofnfrumna yfir í forstig blóðflagna og lauk því árið 2001.

Í febrúar 2006, að doktorsnáminu í Osló loknu, hóf Ólafur aftur störf í Blóðbankanum og er í dag ábyrgur fyrir þjónustu Blóðbankans við vinnslu stofnfrumna fyrir
„eigin stofnfrumuígræðslur“ (autologous stem cells) sem hófst árið 2003. Ólafur stýrir ennfremur hópi innan Blóðbankans sem vinnur að rannsóknum á stofnfrumum, í samstarfi við fjölmarga íslenska og erlenda vísindamenn.

Frétt á norsku um afhendingu orðunnar


(skráð 19. des. 2007)

Til baka

























 


Embla

Íslenskar vefsíður
Bara þessi vefur
Google pubmed-logo



samstarfsadilar
NCS-logo

banner_nci_logo



styrktaradili
ogvodafone-logo
    -   Blóðbankinn v. Barónsstíg.    -   Sími 543-5500   -   Fax 543-5532