Heim : Fréttir : Skýrsla um afstöðu Evrópubúa til líftækni og lífvísinda vekur mikla pólitíska athygli
Skýrsla um afstöðu Evrópubúa til líftækni og lífvísinda vekur mikla pólitíska athygli
Ný fróðleg skýrsla, Europeans and Biotechnology in 2005: Patterns and Trends hefur bæst í greinasafnið hér á stofnfrumur.is. Agnes Eir Allansdóttir, félagssálfræðingur við háskólann í Siena á Ítalíu, er einn höfunda skýrslunnar og ábyrg fyrir stofnfrumuhluta hennar ásamt Jürgen Hampel. Frá árinu 1996 hefur Agnes unnið að rannsóknum á viðhorfum og hugmyndum almennings í Evrópu til líftækni og lífvísinda.
Viðamikil skoðanakönnun var gerð meðal Evrópubúa þar sem fólk var spurt út í viðhorf þeirra til líftækni og lífvísinda. Að sögn Agnesar virðist aðlögunarhæfni almennings vera mikil þegar kemur að tækniframförum, mun meiri en stjórnvalda. Mikill munur reynist oft vera á milli viðhorfa almennings annars vegar og stjórnvalda hins vegar. Fyrsta könnunin af þessu tagi var gerð árið 1991 og svo á þriggja ára fresti eftir það.
Agnes segir markmið þessara rannsókna vera að koma fram með áreiðanleg gögn um afstöðu almennings sem svo sé hægt að byggja á við mótun stefnu í þessum málum.
Skýrslan hefur vakið mikla pólitíska athygli í Evrópu og hefur þegar haft áhrif á stefnumótun Evrópuþingsins. Í aðdraganda kosninga um hvort leyfa ætti fjármögnun fósturstofnfrumurannsókna úr sjóðum Evrópubandalagsins, sem fór fram um miðjan júní á þessu ári, var margoft vitnað í skýrsluna. Niðurstaðan úr málinu varð sú að Evrópuþingið ákvað að leyfa fjármögnun fósturstofnfrumurannsókna en í júlí náði Evrópuráðið að knýja fram málamiðlun þar sem ákveðið var að undanskilja gerð nýrra fósturstofnfrumulína frá þessu leyfi.
Þessi mál eru viðkvæm í Evrópu ekki síður en annars staðar í heiminum og takast oftar en ekki á misstrangtrúaðar þjóðir. Sem dæmi lögðu Ítalía, Þýskaland, Austurríki, Pólland, Luxemborg og Slóvakía fram "ethical position" þar sem farið var fram á að ekki yrði leyft að fjármagna slíkar rannsóknir með fé Evrópubandalagsins. Ítalía dró sig síðar út og varð við það mikið fjaðrafok, einkum meðal kaþólskra stjórnmálamanna á Ítalíu og annars staðar.
Europeans and Biotechnology in 2005: Patterns and Trends
(skráð 14. sept. 2006)
Til baka
|