Heim : Fréttir : Stofnfrumurannsóknir Blóðbankans kynntar á Vísindavöku
|
|
| Orri og Leifur kynna rannsóknir Blóðbankans á Vísindavöku
|
Stofnfrumurannsóknir Blóðbankans kynntar á Vísindavöku
Stofnfrumurannsóknir Blóðbankans kynntar á Vísindavöku
Tveir vísindamenn Blóðbankans, þeir Kristbjörn Orri Guðmundsson og Leifur Þorsteinsson, kynntu stofnfrumurannsóknir Blóðbankans á Vísindavöku sem haldin var í Listasafni Reykjavíkur föstudaginn 23. september. Þar greindu þeir frá þeim stofnfrumurannsóknum sem stundaðar eru í Blóðbankanum og svöruðu spurningum áhugasamra gesta.
Rannís stóð fyrir Vísindavökunni en Evrópusambandið tileinkaði daginn vísindamönnum í Evrópu. Fjölmargir vísindamenn frá hinum ýmsu stofnunum, háskólum og fyrirtækjum voru á staðnum og kynntu rannsóknir sínar.
(skráð 25. sept. 2005)
Til baka
|