multi-vertical-bb


Heim : Fréttir : Stofnfrumuverkefni hljóta styrki úr markáætlun Rannís.
Stofnfrumuverkefni hljóta styrki úr markáætlun Rannís.
Tvö verkefni sem tengjast stonfrumurannsóknum hlutu markáætlunarstyrki Rannís, saman um 33 milljónir. Eiríkur Steingrímsson hlaut tæpar 19 milljónir en verkefni hans nefnist „Umritun Mitf og stofnfrumur litfruma,“ og Guðrún Valdimarsdóttir hlaut tæpar 15 milljónir vegna verkefnisins „Stjórn genatjáningar í stofnfrumum úr fósturvísi manna.“

Samtals voru veittar rúmar 185 milljónir. Átta verkefnanna eru á sviði erfðafræði í þágu heilbrigðis og sex verkefni á sviði örtækni.

Listi fyrir styrkþega markáætlunar 2005

Á vefsíðu Rannís kemur fram að tilgangur markáætlunar sé:

- að efla rannsóknir á þeim þekkingarsviðum sem telja má undirstöður upplýsingasamfélags, sjálfbærs athafnalífs og stuðlað geta að farsælli aðlögun að breyttum aðstæðum.
- að stuðla að aukinni verðmætasköpun, fjölgun atvinnutækifæra og bættri samkeppnisstöðu fyrirtækja með hliðsjón af þeim ógnum og tækifærum sem upplýsingatæknin og ný viðhorf í umhverfismálum skapa.
- að hvetja til aukinna samskipta atvinnulífs og stofnana um rannsóknir, þróunarstarf og aðra þekkingarmyndandi starfsemi á þessum sviðum.
- að skapa forsendur til öflugrar þátttöku Íslands í alþjóðlegu samstarfi um rannsóknir og þróunarstarf á þessum sviðum.

(skráð 5. des. 2005)

Til baka

























 


Embla

Íslenskar vefsíður
Bara þessi vefur
Google pubmed-logo



samstarfsadilar
NCS-logo

banner_nci_logo



styrktaradili
ogvodafone-logo
    -   Blóðbankinn v. Barónsstíg.    -   Sími 543-5500   -   Fax 543-5532