Vefurinn stofnfrumur.is er á vegum Blóðbankans
Blóðbankinn tilheyrir Landspítala – háskólasjúkrahúsi (kt: 500300-2130)

Ábyrgðarmaður: Sveinn Guðmundsson, yfirlæknir Blóðbankans
Vefstjórn: Ólafur Eysteinn Sigurjónsson
Vefslóðir: www.stofnfrumur.is og www.stemcells.is
Á þessum nýja vef er fjallað um stofnfrumur í víðum skilningi. Stofnfrumur, einkum fósturstofnfrumur hafa verið mikið í umræðunni á síðustu árum og hafa deilur staðið um rannsóknir á þeim víða um heim.
Vefurinn á að vera fræðandi fyrir almenning jafnt sem heilbrigðisstarfsfólk og nýtast sem upplýsingamiðill á þessu sviði. Fréttir af stofnfrumumálum, innlendar sem erlendar, birtast á forsíðu. Fjallað verður um stofnfrumurannsóknir, siðfræði og lög sem tengjast stofnfrumum, hina nýju stofnfrumugjafaskrá og klíníska meðferð sem nú er farið að bjóða uppá á Landspítala – háskólasjúkrahúsi.
Hægt er að lesa um ýmislegt sem tengist stofnfrumum og stofnfrumurannsóknum í stuttu og skýru máli en einnig er hægt að finna ýtarefni þar sem farið er dýpra í hlutina. Á vefnum birtast daglega nýjar alþjóðlegar fréttir auk innlendra frétta og verður vefurinn uppfærður reglulega að öðru leiti. Markmiðið er að á þessum vef verði hægt að fá veður af öllu því helsta sem er að gerast í stofnfrumrannsóknum hér á landi og erlendis.
Að auki er að finna stórt safn af tenglum á áhugavert efni, á tímarit, greinar, ritgerðir og fleira. Stofnfrumur.is er á vegum Blóðbankans í samstarfi við fjölmarga sem stunda stofnfrumurannsóknir hér á landi og erlendis.
Það efni og sú umfjöllun sem nú þegar er á vefnum er engan vegin tæmandi, eðli málsins samkvæmt. En vefurinn er nú kominn úr startholunum. Við tekur að hann þróist áfram eftir því sem meira af efni safnast í sarpinn, umræða um stofnfrumur eykst og rannsóknir á þeim fleygir fram.
Hönnun vefjarins miðast við að notaður sé Microsoft Internet Explorer vafri. Ef aðrir vafrar eru notaðir er ekki hægt að útloka að einhverjir gallar komi fram í grafík eða uppsetningu texta.
Stofnfrumur hafa mikið verið í sviðsljósinu undanfarin ár, ekki síst fósturstofnfrumur en um rannsóknir á þeim hefur verið deilt. Um fullorðinsstofnfrumur ríkir sátt almennt og hafa þær verið notaðar í klínískri meðferð í áratugi. Frá því á seinnihluta árs 2003 hefur vissum krabbameinssjúklingum á Íslandi staðið til boða stofnfrumumeðferð, svokölluð háskammtalyfjameðferð með stofnfrumustuðningi . Fram að þeim tíma varð að senda þessa sjúklinga til útlanda. Ýmsar rannsóknir á sviði stofnfrumna eru stundaðar hér á landi og verður þeim gerð skil hér.
Árið 1995 voru blóðmyndandi stofnfrumur einangraðar í fyrsta skipti hér á landi. Var það gert í Blóðbankanum af þeim Kristbirni Orra Guðmundssyni og Leifi Þorsteinssyni.
Allar ábendingar um villur á vefnum eða hvaðeina sem betur má fara eru vel þegnar og má senda athugasemdir á þetta netfang:

Spurningar og svör um stofnfrumur og stofnfrumugjafaskrána