Fréttir
Um stofnfrumur.is
Hafa samband
Heim
:
Fréttir
: Vísindavaka Rannís haldin í annað sinn, 22. september.
Vísindavaka Rannís haldin í annað sinn, 22. september.
Vísindavaka Rannís í fyrra var afar vel heppnuð og hefur verið ákveðið að halda hana í annað sinn. Vísindavakan í ár verður haldin föstudaginn 22. september í Listasafni Reykjavíkur við Tryggvagötu og stendur frá kl. 18.00 – 21.00. Vísindavakan mun verða með svipuðu sniði og í fyrra, en þá tóku þátt vísindamenn frá fyrirtækjum, rannsóknastofnunum og háskólum og um 700 gestir kíktu við.
Dagurinn er tileinkaður vísindamönnum og haldinn hátíðlegur í helstu borgum Evrópu en markmiðið með Vísindavökunni mun vera að vekja áhuga almennings á vísindum og auka vitund um starf vísindamanna og mikilvægi þeirra.
Á vefsíðu Rannís segir að á Vísindavökunni verði lögð áhersla á að setja vísindamanninn sjálfan í forgrunninn með því að gera vísindafólk sýnilegt og aðgengilegt almenningi. Á vökunni fær vísindafólk tækifæri til að koma rannsóknum sínum og niðurstöðum á framfæri á auðskiljanlegan og skemmtilegan hátt og ætti því Vísindavakan að höfða til almennings, jafnt ungra sem aldna.
Ýmsir viðburðir verða í aðdraganda Vísindavökunnar. Sem dæmi má nefna ljósmyndasamkeppni, teiknisamkeppni unga fólksins, vísindakaffi þar sem vísindamenn ræða rannsóknir sínar á „mannamáli“ og einnig verða afhent vísindamiðlunarverðlaun svo kölluð en þau eru veitt einstaklingi fyrir sérstakt framlag til vísindamiðlunar.
Nánari upplýsingar um Vísindavökuna má finna á
vefsíðu Rannís
Myndir frá Vísindavöku 2005:
Ljósmyndir: Björgvin Hilmarsson
(skráð 15. sept. 2006)
Til baka
Prentvæn útgáfa
Íslenskar vefsíður
Bara þessi vefur
- Blóðbankinn v. Barónsstíg. - Sími 543-5500 - Fax 543-5532